Darts
Autodarts standur, LED hringir og myndavélar — prentað á Bambu Lab P1S og H2S. Þú getur keypt fullbúið sett, eða bara þá hluta sem þig vantar ef þú átt t.d. nú þegar LED ljósahring eða myndavélar.
Fullbúið sett
Fullbúið Autodarts sett með LED hringjum → — standur með 3 myndavélafestingum, hvítur ljósahringur fyrir spjaldið og WLED RGB veggljós, með aflgjafa og stýringu. Samsett, vírað og prófað. Frá 45.000 kr. (52.000 kr. með myndavélum).
Hagkvæmast ef þig vantar allt — settið er ódýrara en stöku hlutarnir saman.
Pílukarusell
Pílukarusell fyrir 24 pílur → — snúningsstandur fyrir 8 sett, á legu, með V-laga hólkum sem halda öllum pílustærðum föstum og botni eins og pílukastspjald. 5.900 kr. — eða 4.900 kr. með fullbúnu setti.
Stakir hlutar
Áttu nú þegar hluta af uppsetningunni? Veldu bara það sem vantar. Allir hlutar passa saman og við fullbúna settið, svo þú getur líka bætt við seinna.
| Hluti | Hvað er innifalið | Verð |
|---|---|---|
| Standur með myndavélafestingum | Miðja, 3 armar og fætur með 3 myndavélafestingum, kapalrennum og öllum skrúfum. Án ljósa. | 25.000 kr. |
| Hvítur ljósahringur | Ljósahringur (6000K) sem lýsir spjaldið jafnt upp, festist á myndavélafestingarnar. Með 12V aflgjafa. | 15.000 kr. |
| WLED veggljós | RGB ljósahringur (WS2815) á bakvið standinn, með WLED stýringu og 12V aflgjafa. Stýrt úr símanum. | 18.000 kr. |
| Myndavélar (3 stk. sett) | GXIVISION OV9732, tilbúnar fyrir Autodarts, með USB snúrum. | 8.000 kr. |
Ef þú kaupir fleiri en einn hlut saman deila þeir einum aflgjafa og verðið lækkar — þú færð nákvæmt verð í svari. Sendingarkostnaður (Pósturinn eða Dropp) bætist við, eða sótt eftir samkomulagi.

Panta
Hvernig virkar pöntun?
- Sendu fyrirspurn með forminu hér að neðan — veldu vöru, lit og annað sem skiptir máli.
- Ég svara í tölvupósti, yfirleitt innan 1–2 daga, með verði og áætluðum afhendingartíma.
- Prentað eftir pöntun — hver hlutur er prentaður sérstaklega fyrir þig.
- Sent með Póstinum eða Dropp hvert á land sem er, eða sótt eftir samkomulagi. Sendingarkostnaður bætist við verðið.
Veldu hvort þú viljir fullbúið sett eða stakan hlut, og ég kem aftur með nákvæmt verð og afhendingartíma. Viltu fleiri en einn stakan hlut? Nefndu það í skilaboðunum.


