Fara beint í efni

Fullbúið Autodarts sett með LED hringjum

Fullbúið Autodarts sett — standurinn kemur samsettur, víraður og prófaður, tilbúinn til að hengja á vegginn. Hvítur ljósahringur lýsir spjaldið jafnt upp fyrir myndavélarnar, og WLED RGB veggljós á bakvið gefur flotta óbeina lýsingu sem þú stýrir úr símanum. Prentað á Bambu Lab P1S og H2S.

Upplýst dartspjald í fullbúnu Autodarts setti
Kemur fullbúið. Allt er sett saman, vírað og prófað áður en settið fer frá mér — þú þarft bara að skrúfa það á vegginn og tengja við rafmagn. Áttu nú þegar hluta af uppsetningunni, t.d. LED hring eða myndavélar? Sjáðu stakir hlutar.

Eiginleikar

  • 3 myndavélafestingar fyrir Autodarts (32×32 mm myndavélar, t.d. OV9732)
  • Hvítur ljósahringur (6000K) sem lýsir spjaldið jafnt upp — engir skuggar fyrir myndavélarnar
  • WLED RGB veggljós (WS2815, 12V) á bakvið standinn — litir og hreyfiáhrif, stýrt úr WLED appinu í símanum
  • Kapalrennur í örmunum svo myndavélasnúrurnar smella á sinn stað og sjást ekki
  • 12V aflgjafi og WLED stýring fylgja — ein snúra í innstungu
  • Standurinn skrúfast saman með látúnsgengjum (heat inserts) — sterkur og stöðugur
  • Festur á vegg með 4 skrúfum, um 83 cm í þvermál
  • Fáanlegt í öllum litum — svart á myndunum

Myndband

Verð

ÚtfærslaVerð
Fullbúið sett án myndavélafrá 45.000 kr.
Fullbúið sett með 3 myndavélumfrá 52.000 kr.

Aflgjafi, WLED stýring, LED hringir og allar skrúfur fylgja. Sendingarkostnaður (Pósturinn eða Dropp) bætist við, eða sótt eftir samkomulagi. Þú færð nákvæmt verð í svari við fyrirspurninni.

Myndir

Panta

Hvernig virkar pöntun?

  1. Sendu fyrirspurn með forminu hér að neðan — veldu vöru, lit og annað sem skiptir máli.
  2. Ég svara í tölvupósti, yfirleitt innan 1–2 daga, með verði og áætluðum afhendingartíma.
  3. Prentað eftir pöntun — hver hlutur er prentaður sérstaklega fyrir þig.
  4. Sent með Póstinum eða Dropp hvert á land sem er, eða sótt eftir samkomulagi. Sendingarkostnaður bætist við verðið.

Segðu mér hvort þú viljir settið með eða án myndavéla og í hvaða lit, og ég kem aftur með nákvæmt verð og afhendingartíma.

Hönnun byggð á hugmyndum frá Robbel3D, notuð með leyfi — með eigin breytingum.