Pílukarusell
Pílukarusell sem heldur 24 pílum — 8 settum af 3 — og snýst á legu svo þú nærð í rétta settið með einu handtaki. Hannað frá grunni hjá mér til að laga það sem fer í taugarnar á mér við aðra pílustanda: pílurnar sitja fastar og vagga ekki, sama hvort þær eru grannar eða þykkar. Prentað á Bambu Lab H2S, botninn í fjórum litum eins og alvöru spjald.

Passar fyrir allar pílur. Hver hólkur er langt V sem mjókkar niður: þykkur hólkur á pílunni sest ofar, grannur neðar — en alltaf fastur allan hringinn. Oddurinn fer niður í stút neðst sem heldur honum beinum, svo pílurnar velta ekki þegar þú snýrð standinum. Oddar frá 26 upp í 50 mm passa.
Eiginleikar
- 24 pílur — 8 armar með 3 hólkum, eitt sett á hvern arm
- V-laga hólkar sem halda bæði grönnum og þykkum pílum án þess að vagga
- Stútur fyrir oddinn — styður oddinn alla leið niður, pílurnar velta ekki
- Snýst á legu — mjúkt og hljóðlaust
- Hólkarnir hallast út (0° / 8° / 16°) svo fjaðrirnar á sama arminum rekast ekki saman
- Gluggar í hólkunum sem snúast í spíral — þú sérð píluna og hólkurinn heldur styrk sínum
- Botn eins og pílukastspjald — svartur, hvítur, rauður og grænn
- Um 14 cm í þvermál og 9 cm á hæð — passar á borð, hillu eða við hliðina á spjaldinu
- Fáanlegt í öllum litum — rauður á myndunum
Myndband
Verð
| Útfærsla | Verð |
|---|---|
| Pílukarusell með spjaldbotni | 5.900 kr. |
| Með veggfestingu (hengt á vegg með tveimur skrúfum) | 7.400 kr. |
| Í þínum litum eða með nafni á botninum | frá 7.900 kr. |
Lega og allar skrúfur fylgja. Pílurnar á myndunum fylgja ekki. Sendingarkostnaður (Pósturinn eða Dropp) bætist við, eða sótt eftir samkomulagi.
Kaupirðu fullbúið Autodarts sett? Þá færðu karusellið með fyrir 4.900 kr.
Myndir
Panta
Hvernig virkar pöntun?
- Sendu fyrirspurn með forminu hér að neðan — veldu vöru, lit og annað sem skiptir máli.
- Ég svara í tölvupósti, yfirleitt innan 1–2 daga, með verði og áætluðum afhendingartíma.
- Prentað eftir pöntun — hver hlutur er prentaður sérstaklega fyrir þig.
- Sent með Póstinum eða Dropp hvert á land sem er, eða sótt eftir samkomulagi. Sendingarkostnaður bætist við verðið.
Segðu mér í hvaða lit þú vilt hólkana og hvort þú viljir veggfestingu, og ég kem aftur með nákvæmt verð og afhendingartíma.


